Acetýlsalisýlsýra
Aspirin®/Magnyl®
Acetýlsalisýlsýra
Aspirin®/Magnyl®
Eiginleikar:
Acetýlsalicýlsýra hefur blóðflöguhemjandi, hitalækkandi, bólgueyðandi og verkjastillandi áhrif. Utan sjúkrahúsa er það almennt notað vegna blóðflöguhemjandi verkunar, þar sem það minnkar samloðun blóðflagna og dregur úr hættu á blóðtappa í hjartaæðum.
Ábendingar: Grunur um bráða kransæðastíflu.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir aspiríni eða öðrum NSAID lyfjum.
Aukaverkanir:
Ógleði, uppköst, kviðverkir, blæðingar (t.d. nefblæðingar, tannholdsblæðingar, meltingavegsblæðingar).
Fullorðnir:
▸ Brjóstverkur: 300 mg PO, bryðja ef mögulegt
Ath:
Sjúkraflutningamenn ættu að hafa lágan þröskuld fyrir gjöf aspiríns ef grunur er um brátt kransæðaheilkenni. Best er að gefa lyfið snemma í ferlinu.
Taflan skal tuggin ef mögulegt.
Ekki skal fresta gjöf þótt sjúklingur taki blóðþynningu fyrir.
Ef grunur er um brátt kransæðaheilkenni skal gefa aspirin þó sjúklingur hafi tekið aspirin fyrr um daginn.
Hafa í huga að til greina kemur að gefa aspirín IV ef mikil ógleði/uppköst og lyfið til á því formi. Lyfið skal ekki gefið börnum vegna hættu á Reye heilkenni.
Nánar:
Aspirín hindrar óafturkræft cyclooxygenasa (COX-1) í blóðflögum og kemur í veg fyrir myndun thromboxans A2.
Þetta dregur úr blóðflöguvirkni og minnkar líkur á blóðsega og lokun kransæða.
Áhrifin eru viðvarandi yfir líftíma blóðflögu (~7 dagar).
Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [P] = paramedic (bráðatæknir). ⌛ = lyf skal gefið á X mín. ↻ = endurtaka má lyfjagjöf eftir X tíma. 📞 = Leitið ráðgjafar / heimildar hjá lækni.
Heimildir:
Bibbins-Domingo, K., & DeFilippis, A. P. (2025). Aspirin in the primary prevention of cardiovascular disease and cancer. UpToDate. Retrieved July 11, 2025, from https://www.uptodate.com/contents/aspirin-in-the-primary-prevention-of-cardiovascular-disease-and-cancer
Teva Pharma Iceland ehf. (2023, desember). Hjartamagnýl 75 mg sýruþolnar töflur: Samantekt á eiginleikum lyfs (SmPC). Sérlyfjaskrá. Sótt af https://old.serlyfjaskra.is/FileRepos/2dc9db98-cacd-ef11-8124-005056a1b61b/Hjartamagnyl_SmPC.pdf
Association of Ambulance Chief Executives, & Joint Royal Colleges Ambulance Liaison Committee. (2023). JRCALC clinical guidelines: Aspirin. Association of Ambulance Chief Executives.
Robert A Byrne et al. 2023 ESC Guidelines for the management of acute coronary syndromes: Developed by the task force on the management of acute coronary syndromes of the European Society of Cardiology (ESC), European Heart Journal, Volume 44, Issue 38, 7 October 2023, Pages 3720–3826, https://doi.org/10.1093/eurheartj/ehad191
Dagsetning: 24.09.2025
Höfundur: Bergur Ingi Geirsson bráðatæknir
Yfirfarið: Helga Rún lyfjafræðingur, Vicente SBI bráðalæknir, Þóra Elísabet Kristjánsdóttir heimilislæknir
Samþykkt: DrVSBI
Rafræn útgáfa. Ekki er hægt að treysta því að útprentað eða vistað eintak sé rétt útgáfa. Þessar leiðbeiningar eru eingöngu til leiðsagnar; þeir sem starfa samkvæmt þeim bera ábyrgð á réttum vinnubrögðum og gagnrýnni notkun þessara leiðbeininga.