Eiginleikar:
TXA dregur úr niðubroti blóðsega og minnkar þannig blæðingu. Skal gefið sem fyrst eftir áverka.
Ábendingar:
Áverkar þar sem grunur er um alvarlega blæðingu, einkum ef SBP<90 mmHg eða púls>110 (eða aldursstaðlað hjá börnum). Höfuðáverkar með GCS<13. Blæðing eftir fæðingu (post-partum) sem ekki svarar gjöf samdráttarhvetjandi lyfja.
Frábendingar:
Ofnæmi. >3 klst frá áverka eða upphafi blæðingar. Blæðing augljóslega hætt.
Fullorðnir:
▸ 1 g (2 ampullur) IV ⌛ 10 mín [I]*/**
Börn:
▸ 15 mg/kg IV ⌛ 10 mín [I]*/**
*Má gefa IM deilt í 2 skammta (gefist í 2 aðskilda vöðva)
**Upphafsskammtur gefinn aftur í dreypi á næstu 8 klst. Gerist á spítala ef stuttur flutningur.
Ath:
Gefa snemma! Gefist hægt (á 10 mín) eða í vöðva. Skal ekki gefið í sömu línu og blóðhlutar eða penicillin sýklalyf.
Aukaverkanir:
Ógleði, uppköst, niðurgangur. Blóðþrýstingslækkun ef gefið hratt. Krampar (við háa skammta). Blóðsegamyndun.
Nánar:
Tranexamsýra (e. tranexamic acid – TXA) er lyf sem dregur úr niðurbroti blóðsega með því að hindra virkni ensímsins plasmín í blóði. Rannsóknir hafa sýnt að gjöf TXA minnkar dánartíðni (e. mortality) eftir áverka þar sem grunur er um alvarlegar blæðingar (Crash2 2010) eða blæðingu í höfði (Crash3 2019).
TXA skal gefið sem fyrst eftir áverka (helst innan 1 klst) og skal ekki gefið ef liðnar eru meira en 3 klst. frá áverka enda getur TXA valdið aukinni dánartíðni ef það er gefið seinna í ferlinu. (MATTERs 2012) Líklegast hafa börn jafn mikið gagn eða meira af TXA eftir áverka. (Beno 2017)
TXA gefið í vöðva sem tveir 5 mL (0,5 g) skammtar (sami heildarskammtur og notaður er við gjöf í æð) þolist vel og frásogast hratt, einnig í sjúklingum sem hafa blætt eftir áverka, og mætti þannig nýta IM gjöf í stað IV gjafar þar sem æðaaðgengi er erfitt. (Grassin-Delyle 2021) Gefist í 2 aðskilda vöðva, hliðlægt í læri (m. vastus