Flokkur: Berkjuvíkkandi lyf.
Verkunarháttur:
Berkjuvíkkandi. Lausn til innöndunar (NEB).
Ábendingar:
Astma eða LLT. Hyperkalemia.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir lyfinu. Varúð við háþrýsting, hjartsláttaróreglu, hraðan hjartslátt og verk fyrir hjarta.
Aukaverkanir:
Kvíði. Skjálfti. Hækkaður blóðþrýstingur. Hraður hjartsláttur / hjartsláttaróregla. Hypokalemia, metabolic acidosis
Milliverkanir:
Þríhringlaga þunglyndislyf geta aukið æðavíkkandi áhrif.
Beta-blokkar eru móttækilegir.
Getur aukið blóðkalíumlækkun af völdum þvagræsislyfja.
Fullorðnir:
▸ 5 mg ↻pn [B]
Börn (<6ára):
▸ 2,5 mg ↻pn [B]
Lyfjagjöf:
-Lausn til innöndunar (NEB) 2,5 mg í 2,5 mL (1 mg/mL)
-Gefið í friðarpípu (NEB) með 6-8L O2
-Lyfið má gefa óþynnt eða þynna með NS upp í 4 mL rúmmál
-Má blanda í sömu friðarpípu og ipratropium bromide (Atrovent®) og gefa samtímis.
-Má endurtaka eftir þörfum. Íhuga ipratropium bromide ef 1-2 gjafir hafa ekki dugað
-Leita ráða hjá lækni ef áframhaldandi andnauð þrátt fyrir 3 gjafir (auk ipratropium bromide).
Ath. Ef sjúklingur er með COPD skal takmarka súrefnisgjöf með salbútamóli við 6 mínútur.
Virkni:
Koma fram á 5-15 mín.
Hámarksáhrif koma fram á 30 mín-2 klst.
Virkni lyfsins er 3-4 klst.
Nánar:
Astmi er lungnasjúkdómur sem einkennist af bólgu og berkjuþrengingum í lungum. Berkjuþrengingarnar eru að hluta vegna krampa í sléttum vöðvafrumum berkjunnar.
Salbutamol er beta-2 sérhæft lyf sem örvar aðallega beta-2 viðtaka sem fyrirfinnast m.a. í berkjutré. Lyfið veldur slökun á sléttum vöðvafrumum og víkkar þannig berkjurnar. Salbutamol getur haft einhver áhrif á beta-1 viðtaka í hjarta og þannig valdið auknum hjartsláttarhraða og samdráttarkrafti. Lyfið getur þannig mögulega valdið versnun á hjartsláttartruflunum og aukið súrefnisskort í hjarta við kransæðastíflu. Þarf því að fara varlega með lyfið ef um er að ræða brjóstverk eða hjartsláttartruflanir. Ef aukaverkanir verða áberandi (skjálfti, hraður hjartsláttur) er rétt að bíða með frekari gjöf lyfsins.
Lyfið er gefið með friðarpípu. Áhrifin byrja að koma fram eftir 2-5 mín, ná hámarki á 15-60 mínútum og geta dugað allt að 4-6 klst.
Meta skal virkni út frá klíniskum einkennum svo sem öndunartíðni, öndunarerfiðleikum, súrefnismettun, lungnahlustun, EtCO2 kúrfu.
Ath að öll innúðalyf geta valdið (paradoxical) versnun á berkjukrömpum.
Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [N] = EMT-Nurse (neyðarflutningamaður með hjúkrunarpróf); [P] = paramedic (bráðatæknir) eða EMT-N með sérhæfingu; [MD] = medical doctor (læknir); [CC] = critical care = (teymi bráða-/svæfinga-/gjörgæslulæknis og bráðatæknis/hjúkrunarfræðings). ⌛ = lyf skal gefið á X mín. ↻ = endurtaka má lyfjagjöf eftir X tíma. 📞 = Leitið ráðgjafar / heimildar hjá lækni.
Heimildir Ambulance.is