Eiginleikar:
Sterkt bólgueyðandi verkjalyf. Tilheyrir NSAID-flokki.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir NSAID lyfjum, hypovolemia, gjöf samhliða annarra NSAID eða blóðþynningarlyfja. Virkt magasár eða saga um slíkt.
Skert nýrnastarfsemi, lifrabilun, meðganga (sérstaklega á 3. þriðjungi).
Grunur um blæðingu (t.d eftir trauma) eða skert blóðstorkugeta (t.d lágt hgb)
Ábendingar:
Verkir, sérstaklega nýrnasteinar, gallverkir og stoðkerfisverkir.
Skammtar:
Fullorðnir:
▸ 15 mg IV/IM
Börn >2 ára:
▸ 0,5 mg/kg IV/IM (max 15 mg)
Varúð:
Gjöf samtímis öðrum NSAID lyfjum.
Saga um skerta nýrnastarfsemi, nýrnaskaða, magasár, háþrýsting eða hjartabilun.
Sjúklingar >65 ára (aukin hætta á nýrnaskaða og blæðingum).
Aukaverkanir:
Ógleði og svimi eru algengustu aukaverkanir Ketorolacs.
Brjóstsviði, magaverkir, hækkun á blóðþrýstingi.
Skert nýrnastarfsemi (sérstaklega hjá hypovolemískum og öldruðum).
Ofnæmisviðbrögð, blæðingahætta, höfuðverkur, brjóstsviði, kviðverkir, blæðingarhætta.
Nánar:
Ketórolak hentar vel samhliða öðrum verkjalyfjum, t.d. paracetamóli eða ópíóíðum.
Verkun hefst á ca. 30 mínútum og varir í 4-6 klst.
Ketórolak er áhrifaríkt og hraðvirkt verkjalyf sem getur dregið úr þörf fyrir ópíóíða.
Hámarks verkjastillingaráhrif nást með 10 mg IV.
Ráðlagt er að gefa 10-15 mg IV sem fyrsta skammt.
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar (ekki meira en 2-5 dagar samfellt).
Takmarkaðar rannsóknir eru til um notkun ketórolaks hjá börnum.
Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [P] = paramedic (bráðatæknir). ⌛ = lyf skal gefið á X mín. ↻ = endurtaka má lyfjagjöf eftir X tíma. 📞 = Leitið ráðgjafar / heimildar hjá lækni.