Flokkur:
Ópíóíð verkjalyf.
Eiginleikar:
Opioid verkjalyf (líkt og morfín). Virkar fljótt.
Ábendingar:
Meðalslæmir eða slæmir verkir, hvort sem er eftir slys eða veikindi.
Frábendingar:
Þekkt ofnæmi, öndunarbæling, meðvitundarskerðing. Yfirstandandi fæðing. Við IN gjöf: nefblæðing eða báðar nasir stíflaðar
Aukaverkanir:
Öndunarbæling, slæving, ógleði og uppköst, kláði, lágþrýstingur.
Fullorðnir:
▸ 25-50 mcg IV/IM. ↻5 mín. Max 100 mcg.
▸ 1,5 mcg/kg IN. ↻10 mín. Max 3 mcg/kg.
📞Börn >10kg/1 árs:
▸ 0,5 mcg/kg IV/IM. ↻5 mín. Max 1 mcg/kg.
▸ 1,5 mcg/kg IN. ↻10 mín. Max 3 mcg/kg.
↻Má endurtaka eftir 5 (IV) eða 10 (IN) mín, gjarnan með hálfum upphafsskammti.
📞Fá heimild læknis áður en börnum <6 ára er gefið fentanýl.📞
Virkni samstundis:
Fentanýl er hraðvirkara en morfín og nær hámarksvirkni á 3-5 mínútum eftir gjöf í æð, á meðan hámarksvirkni morfíns næst eftir 15-20 mínútur.
Fentanýl skilst líka hraðar út og eru áhrif fentanýls nánast horfin eftir um 30-60 mínútur eftir staka gjöf (áhrif morfíns vara í nokkrar klst). Vegna þessa hentar fentanyl betur til þess að slá á bráða verki (slys, bráð veikindi) en jafnframt þarf að fylgjast vel með sjúklingum sem hafa fengið fentanyl vegna hættu á öndunarslævingu.
Sérstök atriði:
ATH: Meta skal verki (NRS/VAS) og mæla lífsmörk, fyrir og eftir gjöf.
Fylgjast vel með öndunarmynstri og öndunartíðni, ásamt súrefnismettun (stöðug mæling).
Skammtar eru í míkrógrömmum (mcg).
Styrkleiki er 50 mcg/ml og 2 mL lykja inniheldur þannig 100 mcg sem er jafngilt ca. 5-10 mg af morfíni.
Draga upp 0,1 mL aukalega við fyrstu gjöf til að fylla MAD Nasal.
Neyðarflutningamenn [I] mega í undantekningatilvikum gefa fentanýl að undangenginni viðeigandi fræðslu og að fenginni heimild læknis (í hvert skipti sem það er gefið).
Varúð:
Veldur öndunarbælingu, einkum ef gefið hratt eða í háum skömmtum. Naloxone er mótefni. Við gjöf hárra skammta er hætta á stífleika í brjóstkassa (rigid chest), en við lágskammtameðferð er það óalgengt. Notist ekki hjá sjúklingum í blóðþurrðarlosti vegna hættu á blóðþrýstingsfalli.
Nánar:
Fentanýl er tilbúið ópiumlyf (e. synthetic opioid). Það hefur svipaðan verkunarmáta og morfín (sem er náttúrulegt ópíumlyf) en fentanyl er mun virkara (potent) eða ca. 50-100x. Lyfið er skammtað í míkrógrömmum (1 milligramm = 1000 míkrógrömm) og er hægt að gefa það í æð, í vöðva, í nös eða í beinmerg (intra osseous)
Þó fentanýl valdi ekki eins miklum blóðþrýstingslækkandi áhrifum og morfín sökum minni losunar histamíns, getur það þó valdið lágþrýstingi. Sérstök varúð við notkun Fentanyls ef sjúklingur er í blóðþurrðarlosti. Ofnæmi fyrir fentanýli er sjaldgæft.
Bráðatæknar [P] og hjúkrunarfræðingar/AEMT [N] (sem hafa lokið neyðarflutninganámi) sem fengið hafa viðeigandi þjálfun og fræðslu og hafa staðist könnun hafa heimild til þess að gefa lyfið að gefnu samþykki og heimild umsjónarlæknis á því svæði. Heimildir verða endurskoðaðar þegar reynsla hefur fengist af notkun lyfsins utan spítala. Fræðsluefni má finna HÉR.
Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [N] = EMT-Nurse (neyðarflutningamaður með hjúkrunarpróf); [P] = paramedic (bráðatæknir) eða EMT-N með sérhæfingu; [MD] = medical doctor (læknir); [CC] = critical care = (teymi bráða-/svæfinga-/gjörgæslulæknis og bráðatæknis/hjúkrunarfræðings). ⌛ = lyf skal gefið á X mín. ↻ = endurtaka má lyfjagjöf eftir X tíma. 📞 = Leitið ráðgjafar / heimildar hjá lækni.