Midazolam [P/I]
Midazolam [P/I]
Eiginleikar:
Stuttvirkt benzodiazepin lyf. Krampastillandi, róandi og slævandi. Miðað er við notkun 5 mg/ml styrkleikans utan spítala (er einnig til sem 1 mg/ml).
Frábendingar:
Minnkuð meðvitund (nema í krampa). Öndunarbæling.
Fullorðnir:
▸ Flog: 10 mg IM* eða 5 mg IV ↻ 10 mín (x1) [I]
▸ Róandi: 1-2 mg IV [N/P]
▸ 📞 Sturlun: 5-10 mg IM 📞 [P]
Börn<50kg:
▸ Flog: 0,2 mg/kg IM* eða 0,1 mg/kg IV ↻ 10 mín (x1) [I]
▸ 📞 Sturlun: 0,1-0,2 mg/kg IM 📞 [P]
Þyngd (kg) 10 20 30 40 50
Gjöf IM/IN 2 mg 4 mg 6 mg 8 mg 10 mg
Gjöf IV 1 mg 2 mg 3 mg 4 mg 5 mg
*Má gefa innanvert á kinn (BUC) eða í nös (IN) í sömu skömmtum
↻Endurtaka x1 eftir 10 mín ef áfram flog
📞 Fá heimild læknis fyrir gjöf við æðiskast (sérstaklega ef um börn er að ræða).
Varúð:
Slævandi og öndunarbælandi (einkum ef gefið samhliða ópíóíðum). Fylgjast með öndunarvegi og öndun eftir gjöf lyfs. Getur safnast fyrir hjá sjúklingum með lifrarbilun.
Aukaverkanir:
Öndunarslæving. Minnkuð meðvitund. Lyfið getur ert slímhúðir og gefið vont bragð við gjöf IN/BUC en það skiptir litlu máli í krampa.
Nánar:
Sjá nánar leiðbeiningar varðandi flog.
Rannsókn Silbergleit og félaga (NEJM 2012) styður notkun midazolam í vöðva sem fyrsta val við bráðameðferð floga utan spítala og aðrar rannsóknir sýna vel gagnsemi