Eiginleikar:
Sterkt verkjalyf. Slævandi / svæfandi (“dissociative”) áhrif.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir lyfinu. Varlega við alvarlegan geðsjúkdóm. Varlega ef hækkun blóðþrýstings getur valdið skaða (t.d. meðgöngueitrun, alvarlegur háþrýstingur, brjóstverkur).
Aukaverkanir:
Martraðir. Aukin munnvatnsframleiðsla. Uppköst. Laryngospasmi (sjaldgæft). Öndunarstoppi og lokun öndunarvegar er lýst við hraða gjöf á háum skömmtum en ætti ekki að vera vandamál við lægri skammta. Hækkuðum innankúpuþrýstingi (e. intracranial pressure) og augnþrýstingi (e. intra ocular pressure) hefur verið lýst en er ekki líklegt til að valda einkennum/skaða (e. not clinically significant). Vont bragð og sviði í tungu ef gefið IN.
Fullorðnir:
▸▸ Verkjastilling: 12,5 - 25mg iv við svæsnum verkjum. 12,5mg iv ↻ 5min. Max heildarskammtur 50mg iv. [P]
▸📞 Sturlun: 2 mg/kg IM [P]
▸ Svæfing: 1 mg/kg IV (4 mg/kg IM) [CC]
Börn (≥1árs):
▸ Verkjastilling: 0,1 mg/kg IV eða 0,5 mg/kg IM [P]
*Má gefa í nös: 0,5 mg/kg IN
Ath:
Það er gott að þynna lyfið út til IV gjafar. 2 mL í 10 mL sprautu m 8 mL NS gefur 5 mg/mL styrkleika og þannig er hægt að títra lyfið að verkun með því að gefa smærri skammta (2,5-5 mg í senn) með tíðari gjöfum. Full verkun næst á ca. 60 sek eftir IV gjöf og því hægt að títra smærri skammta ört í samræmi við það.
Með hækkandi skömmtum er hætt við því að sjúklingur verði slævður og jafnvel svæfður en það gerist venjulega við S-ketamin 0,5-1,0 mg/kg IV eða 2-4 mg/kg IM. Einstaklingur sem er mjög æstur (“sturlaður”) þarf töluvert stærri skammt til þess að róast og því eru áhrifin minni en geta þó skyndilega orðið meiri og þarf að vakta sjúkling sérstaklega vel eftir stærri skammta í vöðva (eða æð).
Midazolam 1-2 mg (0,05 mg/kg) má gefa með ketamíni til að draga úr martröðum.
Nánar:
(S-)Ketamine er sterkt verkjalyf með slævandi áhrif. Lyfið nýtur vaxandi vinsælda í utanspítalaþjónustu og á bráðamóttökum um heim allan. Ástæður þessa eru margvíslegar. Lyfið hefur fáar aukaverkanir, lítil neikvæð áhrif á hjarta og æðakerfi, veitir góða verkjastillingu og virkar fljótt, bæði eftir gjöf í æð, í nef eða í vöðva. Lyfið þolist á mjög breiðu skammtabili, er einfalt í skömmtun og lyfjagjöf sömuleiðis einföld. Lyfið þolist almennt vel, en
vegna martraða skal forðast að gefa lyfið sjúklingum með alvarlega geðsjúkdóma (s.s. geðklofa (schizophrenia) eða sjúklinga með þunglyndi með geðrofseinkenni, nema í samráði við lækni (lyfið er stundum notað sem meðferð við alvarlegu þunglyndi).
Við sturlun (e. excited delirium syndrome) er lykilatriði að róa sjúkling fljótt. Leitið ráða hjá lækni áður en ketamíni er beitt nema aðstæður leyfi það ekki. Gefið 2mg/kg IM (eða 1mg/kg IV). Ef næg slæving hefur ekki náðst á 10mín, má endurtaka lyfjagjöf með helmingi fyrri skammts (t.d. Ef 200mg IM gefin fyrst, þá endurtaka með 100mg IM).
Lyfjafræði: Ketamín hamlar NMDA viðtaka í heilanum og framkallar hugrof (e. dissociation). Á því byggjast hæfileikar lyfsins til verkjastillingar og í hærri skömmtum til slævingar/svæfingar. Ketamín er lyf sem sem er samsett úr tveimur sameindum sem eru efnafræðilega eins en “speglast” svipað og hægri og vinstri hendur. Önnur þessara sameinda (s-ketamine, “vinstri höndin”) hefur meiri verkjastillandi/slævandi áhrif en veldur síður martröðum. S-ketamín er eina lyfið sem er á markaði á Íslandi í dag til notkunnar í mönnum en blandað (e. racemic) ketamín er til sem dýralyf. Vegna þess að s-ketamín hefur meiri verkjastillandi og slævandi áhrif en blandað ketamín þarf að gefa ca. helmingi minna af því til að ná sömu áhrifum, t.d. er miðað við að svæfingaskammtur af blönduðu ketamíni sé 2 mg/kg en það nægir að gefa 1 mg/kg af s-ketamíni.
Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [N] = EMT-Nurse (neyðarflutningamaður með hjúkrunarpróf); [P] = paramedic (bráðatæknir) eða EMT-N með sérhæfingu; [MD] = medical doctor (læknir); [CC] = critical care = (teymi bráða-/svæfinga-/gjörgæslulæknis og bráðatæknis/hjúkrunarfræðings). ⌛ = lyf skal gefið á X mín. ↻ = endurtaka má lyfjagjöf eftir X tíma. 📞 = Leitið ráðgjafar / heimildar hjá lækni.