Eiginleikar:
Droperidol er geðrofslyf (antipsychotic). Virkar á alfa og dópamín viðtaka, veldur sljóvgandi áhrifum.
Frábendingar:
Saga um ofnæmi eða alvarlegar aukaverkanir af lyfinu (t.d. dystonic reaction). Parkinson–sjúkdómur.
Aukaverkanir:
Æðavíkkun og lágþrýstingur. Utanstrýtuáhrif, Extrapyramidal áhrif. Jafnvægisleysi og óstöðugleiki.
Ábendingar:
Sturlun (agitated delirium). Geðrof. Mikill óróleiki og æsingur. Má íhuga við mikilli ógleði eða viðvarandi uppköstum sem svarar ekki annarri meðferð.
Blöndun:
Droperidol kemur sem 2,5 mg í 1 ml hettuglösum (2,5 mg/ml)
Lyfjagjöf:
- Innspýting í vöðva: Gefið óþynnt, djúpt í vöðva (kjörleið fram yfir lyfjagjöf í æð).
- Innspýting í bláæð: Gefið sem bólus í bláæð á 3 mín.
Ekki skal tefja lyfjagjöf með uppsetningu æðaleggs heldur skal gefa lyfið strax í vöðva (IM). Engin munur er á virkni lyfsins hvort sem gefið er IV eða IM.
Skammtar:
📞 Aldur 16-65 ára
▸Óróleiki – IM 5 mg, IV 2,5 – 5 mg.
▸Sturlun – IM 10 mg, IV 5-10 mg
Má endurtaka lyfjagjöf 1x eftir 15 min, 5-10 mg í senn, að hámarki 20 mg á 24 klst.
Hugleiðið að fara yfir í Midazolam ef sjúklingur er ekki að svara meðferð með hámarksskömmtum.
📞 Aldur 65 ára og eldri
▸Óróleiki – 2,5 mg IV/IM
▸Sturlun – 5 mg IV/IM Má endurtaka lyfjagjöf 1x eftir 15 min, 2,5-5 mg í senn, að hámarki 10 mg á 24 klst.
Börn:
📞 Aldur 6-16 ára
▸ Óróleiki/Sturlun – 0.1-0.2 mg/kg IV/IM
Má endurtaka lyfjagjöf 1x eftir 15 min, að hámarki 10 mg á 24 klst
Vakta skal lífsmörk við fyrsta tækifæri!
Bráðatæknir skal ráðfæra sig við lækni áður en lyf eru gefin við sturlun ef þess er nokkur kostur enda er hér um að ræða meðferð sem felur í sér mikið inngrip gagnvart sjúklingnum. Aðstæður geta þó verið þannig að slíkt sé ekki hægt.
Óvenjulegt er að þurfa að beita þessum úrræðum hjá börnum <12 ára og skal þá ávallt leita ráða hjá lækni áður en meðferð er veitt.
Verkunartími: Áhrif eftir 5-15 mín.
Virkni í 4-6 klst.
Varúð: Getur valdið mikilli slævingu, fylgjast þarf vel með öndunarvegi sjúklings og styðja skal við ABC.
Ath:
Íhuga mídazolam ef lítil svörun fæst með dróperidóli við óróleika eða sturlun.
Lyfið getur valdið mikilli slævingu.
Engin munur er á virkni hvort sem lyfið er gefið IM eða IV.
Gefa skal lyfið hægt ef það er gefið IV.
Vakta skal lífsmörk við fyrsta tækifæri.
Nánar:
Droperidol er geðrofslyf (antipsychotic).
Droperidol er skammvirkur og öflugur Dópamín D2 antagonisti sem kemst auðveldlega gegnum blóðheilaskilju (blood brain barrier) með hraðri slævandi og ógleðisstillandi virkni. Var talið valda QT lengingu með hættu á hjartsláttartruflunum en nýjar rannsóknir hafa afsannað það nema við endurtekna háa skammta.
Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [N] = EMT-Nurse (neyðarflutningamaður með hjúkrunarpróf); [P] = paramedic (bráðatæknir) eða EMT-N með sérhæfingu; [MD] = medical doctor (læknir); [CC] = critical care = (teymi bráða-/svæfinga-/gjörgæslulæknis og bráðatæknis/hjúkrunarfræðings)
Heimildir: https://www.pdr.net/drug-summary/?drugLabelId=1412Prescribers Digital Reference.
https://www.pdr.net/ https://www.ambulance.qld.gov.au/docs/clinical/dtprotocols/DTP_Droperidol.pdf https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC5883829/
Útgefið: 08.04.2024
Uppfært: 04.06.2024
Höfundur: Eyjólfur Karlsson / Guðjón Petersen
Meðhöfundur: Helga Rut Steinsdóttir Miðstöð Lyfjaupplýsinga
Samþykkt: Vicente Sanchez-Brunete Ingelmo
Rafræn útgáfa. Ekki er hægt að treysta því að útprentað eða vistað eintak sé rétt útgáfa. Þessar leiðbeiningar eru eingöngu til leiðsagnar; þeir sem starfa samkvæmt þeim bera ábyrgð á réttum vinnubrögðum og gagnrýnni notkun þessara leiðbeininga. Breytingarsaga