Eiginleikar:
Ógleðistillandi lyf, virkar bæði miðlægt og í meltingarvegi.
Ábendingar:
Ógleði og uppköst (meðferð eða fyrirbyggjandi).
Frábendingar:
Blæðing-, stífla- eða rof í meltingarvegi. Börn <1 árs.* Pheochromocytoma.**
Fullorðnir:
▸ 10 mg iv/im (⌛ 1-2 mín) [i]
Börn >1árs:
▸ 0,15-0,3 mg/kg iv/im (⌛ 1-2 mín) [i]
Ath:
Getur valdið óróleika og vanlíðan ef gefið of hratt. Varlega ef Parkinsons sjkd eða lyf sem valda extrapyramidal einkennum.*
Aukaverkanir:
Extrapyramidal einkenni*, munnþurrkur, útbrot.
Nánar:
Verkun fæst e. 1-3 min iv og 10-15 min im, og endist í 1-2 klst.
Metoclopramid hefur hamlandi verkun á miðlæg og útlæg dópamín viðtæki (dopamine receptor antagonist) og eykur hreyfingar í meltingarvegi (peristalsis), eykur einnig tonus í efra magaopi (LES – lower esophageal sphincter), minnkar tonus í neðra magaopi (pylorus vöðva), og samræmir samdrátt í fremri og aftari hluta maga. Ýtir þannig undir magatæmingu.
*Helstu aukaverkanir metoclopramid eru s.k. extrapyramidal einkenni sem lýsa sér sem dystonia (stöðugir vöðvakrampar/-spasmar), akathisia (hreyfióróleiki), parkinsonslík einkenni (stífleiki, hægar hreyfingar, skjálfti) og tardive dyskinesia (hreyfingar verða óreglulegar, einskonar kippir). Þessar aukaverkanir eru algengari hjá börnum <5 ára og sérstaklega <1 árs. Hefðbundin geðrofslyf á borð við haloperidol (Haldol®) geta einnig valdið extrapyramidal einkennum og samtímis gjöf þessara lyfja er því óæskileg.
Meðferð við Parkinson’s sjúkdómi byggir m.a. á gjöf dopamin-virkra lyfja og þannig geta dopamin-hamlandi lyf líkt og metoclopramid gert einkennin verri.