Eiginleikar:
Víkkar berkjur (B2), hraðar hjartslætti (B1) og hækkar blóðþrýsting (A1).
Hindrar losun ofnæmisboðefna frá mastfrumum.
Er til í tveimur styrkleikum 1 mg í mL (1:1000) og 1 mg í 10 mL (1:10.000).
Frábendingar:
Engar í hjartastoppi. Alvarlegur kransæðasjúkdómur, ómeðhöndluð ofvirkni skjaldkirtils, hypokalemia.
Ábendingar:
Bráðaofnæmiskast (anaphylaxis). Hjartastopp. Hægataktur. Lágþrýstingur / lost t.d. vegna sýklasóttar eða hjartabilunar.
Asthmi sem ekki svarar meðferð.
Croup hjá börnum (NEB).
Skammtar:
▸ Hjartastopp: 1 mg IV/IO ↻3-5 mín [I]
▸ Bráðaofnæmi: 0,5 mg IM ↻5-15 mín [I]
▸ 📞Hægataktur: Dreypi 2-10 mcg/mín IV* [P]
▸ 📞Lágþrýstingur: 5-20 mcg IV í senn** eða dreypi* [P]
▸ 📞Asthmi: 0,3-0,5 mg SC á 20 mín fresti [P]
Börn:
▸ Hjartastopp: 0,01 mg/kg IV/IO *** ↻3-5 mín [I]
▸ Bráðaofnæmi: 0,01 mg/kg IM*** að 0,5 mg ↻5-15 mín [I]
▸ 📞Lágþrýstingur: Dreypi 0,1-1,0 mcg/kg/min IV* [P]
▸ 📞Asthmi: 0,01 mg/kg SC mest 0,5 mg [P]
▸ Croup: 5 mL 1:1000 NEB með 10L O2 [P/N]
↻ Endurtaka lyfjagjöf í samræmi við ALS leiðbeiningar á 3-5 mín fresti. Endurtaka við bráðaofnæmi eftir 5-15 mín ef einkenni ekki batnandi.
📞 Ráðgjöf læknis áður en adrenalín er gefið IV nema við hjartastopp.
📞 Ráðgjöf læknis áður en adrenalín er gefið sem framhaldsmeðferð við asthma.
*Blöndun dreypis: 1 mg í 500 mL eða 2 mg í 1000 mL gefur 2 mcg/mL. 20 dropar = 1 mL í venjulegu gjafasetti. 20 dropar/mín = 1 mL/mín = 2 mcg/mín. Skal helst gefið með vökvadælu.
**1 mg í 100 mL EÐA 2 mL af 1:10.000 í 20 mL sprautu —> 10 mcg/mL.
*** IV/IO 0,01 mg/kg = 0,1 mL/kg af 1:10.000; IM 0,01 mg/kg = 0,01 mL/kg 1:1000.
Ath:
Er til sem 1 mg/ml (1:1000) til notkunar í vöðva við bráðaofnæmi og til notkunar óþynnt við hjartastopp eða til þynningar. Er einnig til á undanþágu sem 1 mg í 10 ml (1:10:000) til notkunar í æð við bráðar aðstæður, m.a. hjartastopp. Annars skal þynna frekar til gjafar í æð.
Við bráðaofnæmi skal gefa lyfið 1:1000 í vöðva utarlega framanvert á læri.
Við Croup skal gefa 5 mL adrenalín 1:1000 óþynnt í friðarpípu (NEB) óháð aldri og þyngd. Áhrifin eru sambærileg gjöf racemic epinephrine og vara í ca. 30 mín. Barnið skal vaktast á sjúkrahúsi í minnst 2 klst eftir adrenalín friðarpípu.
Varúð: Vakta sjúkling og flytja á sjúkrahús eftir gjöf adrenalíns. Einkenni bráðaofnæmis geta endurtekið sig. Breytingar á hjartslætti og blóðþrýstingi eru líklegar.
Aukaverkanir: Hár blóðþrýstingur, hraður hjartsláttur, hjartsláttartruflanir. Hjartaöng. Kvíði, óróleiki, skjálfti, höfuðverkur. Hækkaður blóðsykur. Ógleði, uppköst.
Nánar:
Adrenalín er ósértækt taugaboðefni og hormón sem binst beta-1 (örvar hjarta), beta-2 (víkkar berkjur) og alfa-1 (dregur saman æðar) viðtækjum ásamt því að hindra losun bólgumiðla úr mast frumum.
Adrenalín er eina lyfið sem talið er sannað að dragi úr dánarlíkum við bráðaofnæmiskast.