Hefjið ekki meðferð án samráðs við Hjartagátt.
Eiginleikar:
Klópídógrel, virka efnið í lyfinu, hefur blóðþynnandi áhrif. Það kemur í veg fyrir samloðun blóðflagna
Ábendingar: Stemi
Verkun:
Klópídógrel, virka efnið í lyfinu, hefur blóðþynnandi áhrif.
Það kemur í veg fyrir samloðun blóðflagna, sem er fyrsta skrefið í blóðstorknun og myndun á blóðtappa. Klópídógrel lengir einnig blæðingartíma.
Lyfið er forlyf og þarf því að umbrotna í líkamanum áður en verkun þess kemur fram.
Ef blóðtappi myndast og stíflar slagæð kemur fram blóðþurrð og jafnvel drep í vefjum sem æðin liggur til. Stífli blóðtappi bláæð myndast bjúgur og bólga í vefjum sem æðin liggur frá.
Æðakölkun veldur æðaþrengingu og auknum líkum á því að blóðtappi nái að myndast.
Clopidogrel Krka er notað til að fyrirbyggja heila- eða hjartadrep vegna blóðtappa og við sjúkdómum í útlægum slagæðum.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir virkaefninu eða einhverju hjálparefnanna.
Veruleg skert lifrastarfsemi.
Virk blæðing vegna sjúdóms t.d. magasárs eða blæðinar innan höfuðkúpu.
Aukaverkanir:
Algengar :Magúll á æðum , blóðnasir , blæðingar í meltingarvegi, niðurgangur, kviðverkir , mar á húð , blæðing á stúngustað.
Gæta skal varúðar við samhliða gjöf klópídógrels og asetýlsalicýlsýru, heparíns og segavarnarlyfja vegna hugsanlegrar hættu á aukinni blæðingahættu. Bólgueyðandi gigtarlyf geta valdið sárum í meltingarvegi og samhliða gjöf klópídógrels getur það aukið blæðingahættu. Náttúrulyfið ginkgo getur aukið blæðingahættu.
Ábendingar:
Sturlun (agitated delirium). Geðrof. Mikill óróleiki og æsingur.
Skammtar:
Brátt hjartadrep með ST-hækkun:
Sjúklingum sem eru í lyfjameðferð og uppfylla skilyrði segaleysandi/storkusundrandi meðferðar skal gefa klópídógrel í einum 75 mg skammti á sólarhring ásamt acetýlsalicýlsýru og með eða án segaleysandi lyfja eftir gjöf 300 mg hleðsluskammts í upphafi meðferðar.
Íhuga má 600 mg hleðsluskammt handa sjúklingum sem eru <75 ára þegar framkvæma á kransæðavíkkun
Hjá sjúklingum eldri en 75 ára sem eru í lyfjameðferð á ekki að hefja meðferð með hleðsluskammti klópídógrels.
Hefja á samsetta meðferð eins fljótt og hægt er eftir að einkenni koma fram og halda meðferð áfram í að minnsta kosti 4 vikur.
Kostir samsettrar meðferðar klópídógrels með acetýlsalicýlsýru lengur en 4 vikur hafa ekki verið rannsakaðir hjá þessum sjúklingum
Börn :
Klópídógrel er ekki ætlað börnum vegna þess að ekki hefur verið sýnt fram á verkun.
Ekki er ráðlagt að nota 600 mg hleðsluskammt af klópídógreli hjá sjúklingum með brátt kransæðaheilkenni án ST-hækkunar og ≥75 ára vegna aukinnar blæðingarhættu hjá þessum sjúklingum.