Flokkur:
Berkjuvíkkandi lyf
Eiginleikar:
Víkkar berkjur og dregur úr slímmyndun. Lausn til innöndunar (NEB).
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir lyfinu. Varúð við gláku.
Aukaverkanir:
Víkkuð sjáöldur. Munnþurrkur. Hjartsláttarónot.
Fullorðnir:
▸ 500 mcg NEB [I]
Börn (<12 ára):
▸ 1 mL = 250 mcg NEB [I]
▸ ½ mL = 125 mcg NEB [I] ef <1 árs
Lyfjagjöf:
-Lausn til innöndunar (NEB) 500 mcg í 2 mL (250 mcg/mL)
-Gefið í friðarpípu (NEB) með 6-8L O2
-Lyfið má gefa óþynnt eða þynna með NS upp í 4 mL rúmmál
-Má blanda í sömu friðarpípu og salbutamol (Ventolin®) og gefa samtímis.
-Má endurtaka e. 20 mín að hámarki 3x
Ath. Ef sjúklingur er með COPD skal takmarka súrefnisgjöf með salbútamóli við 6 mínútur.
Virkni:
Koma fram við upphaf meðferðar á 1-3 mínútum eftir lyfjagjöf.
Hámarksáhrif lyfsins koma fram innan 1,5-2 klst.
Hámarksvirkni lyfsins er 4-6 klst.
Nánar:
Ipratropium bromide er berkjuvíkkandi lyf með andmuscariniska andkólinerga verkun. Lyfið slakar á berkjuþrengingu vegna astma en beta-2 agonistar (Ventoline®) virka hraðar og skemur. Lyfið hefur mögulega meiri áhrif á berkjuþrengingar vegna langvinnrar lungnateppu (LLT = e. COPD).
Lyfið er gefið í friðarpípu. Áhrifin byrja eftir fáeinar mínútur, en hámarks verkun næst eftir ca. 2 klst og endist í 4-6 klst.
Meta skal virkni út frá klíniskum einkennum svo sem öndunartíðni, öndunarerfiðleikum, súrefnismettun, lungnahlustun, EtCO2 kúrfu.
Ath að öll innúðalyf geta valdið (paradoxical) versnun á berkjukrömpum.
Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [N] = EMT-Nurse (neyðarflutningamaður með hjúkrunarpróf); [P] = paramedic (bráðatæknir) eða EMT-N með sérhæfingu; [MD] = medical doctor (læknir); [CC] = critical care = (teymi bráða-/svæfinga-/gjörgæslulæknis og bráðatæknis/hjúkrunarfræðings). ⌛ = lyf skal gefið á X mín. ↻ = endurtaka má lyfjagjöf eftir X tíma. 📞 = Leitið ráðgjafar / heimildar hjá lækni.
Heimildir Ambulance.is