Adrenalín dreypi 2 mcg/mL [P]
Adrenalín dreypi 2 mcg/mL [P]
Eiginleikar:
Víkkar berkjur (B2), hraðar hjartslætti (B1) og hækkar blóðþrýsting (A1). Hindrar losun ofnæmisboðefna frá mastfrumum.
Ábendingar:
Hægataktur. Lágþrýstingur / lost t.d. vegna sýklasóttar eða hjartabilunar. Einnig gefið sem bolus við bráðaofnæmiskasti (anaphylaxis), hjartastoppi, og astma sem ekki svarar meðferð. Úði til innöndunar (NEB) við croup hjá börnum, sjá adrenalín.
Frábendingar:
Engar í hjartastoppi. Alvarlegur kransæðasjúkdómur, ómeðhöndluð ofvirkni skjaldkirtils, hypokalemia.
Skammtar:
▸ 📞Hægataktur: Dreypi 2-10 mcg/mín IV [P]
▸ 📞Lágþrýstingur: Dreypi 2-10 mcg/mín IV [P]
Börn:
▸ 📞Lágþrýstingur: Dreypi 0,1-1,0 mcg/kg/min IV* [P]
📞 Ráðgjöf læknis áður en adrenalín er gefið IV nema við hjartastopp.
Tafla adrenalín dreypi hjá börnum. Miðast við 2 mcg/mL.
Byrjunarskammtur Þyngd (kg) 10 20 30 40 50
0,1 mcg/kg/min mL/mín 0,5 1,0 1,5 2,0 2,5
dr/mín 10 20 30 40 50
Dreypi blandað með 0,9% NaCl eða 5% glúkósa. Ein ampulla = 1 mg út í 500 mL gefur 2 mcg/mL. Venjulegt gjafasett gefur 20 dropa = 1 mL. 20 dropar/mín = 1 mL/mín = 2 mcg/mín. Skal helst gefið með vökvadælu.
Ath:
Adrenalín er til í tveimur styrkleikum 1 mg í mL (1:1000) og 1 mg í 10 mL (1:10.000). Skiptir ekki máli hvort er notað en 1 amp eða 1 forfyllt sprauta inniheldur 1 mg.
Aukaverkanir:
Hár blóðþrýstingur, hraður hjartsláttur, hjartsláttartruflanir. Hjartaöng. Kvíði, óróleiki, skjálfti, höfuðverkur. Hækkaður blóðsykur. Ógleði, uppköst.
Nánar:
Adrenalín er ósértækt taugaboðefni og hormón sem binst beta-1 (örvar hjarta), beta-2 (víkkar berkjur) og alfa-1 (dregur saman æðar) viðtækjum ásamt því að hindra losun bólgumiðla úr mast frumum.