Midazolam BUC (Buccolam®) [B]
Midazolam BUC (Buccolam®) [B]
Eiginleikar:
Gel til gjafar innanvert á kinn.
Kemur í 4 mismunandi túpustærðum (2,5 mg, 5 mg, 7,5 mg, og 10 mg).
Stuttvirkt benzodiazepin lyf.
Krampastillandi, róandi og slævandi.
Flog (krampi) sem staðið hefur >5 mín.
Frábendingar:
Minnkuð meðvitund (nema í krampa). Öndunarbæling.
Fullorðnir:
▸ Flog: 10 mg BUC ↻ 10 mín (x1)
📞Börn<50kg:
▸ Flog: 0,2 mg/kg BUC ↻ 10 mín (x1)
↻Endurtaka x1 eftir 10 mín ef áfram flog
📞Fá heimild læknis fyrir gjöf hjá börnum.
<1 árs 2,5 mg (Gulur miði)
1-4 ára 5 mg (Blár miði)
5-9 ára 7,5 mg (Fjólublár miði)
≥10 ára 10 mg (Appelsínugulur miði)
Varúð:
Slævandi og öndunarbælandi (einkum ef gefið samhliða ópíóíðum). Fylgjast með öndunarvegi og öndun eftir gjöf lyfs. Getur safnast fyrir hjá sjúklingum með lifrarbilun.
Aukaverkanir:
Öndunarslæving. Minnkuð meðvitund.
ATH: Almennir sjúkraflutningamenn skulu fá viðeigandi fræðslu áður en heimild til gjafar midazolam gels er veitt. Umsjónarlæknir og rekstraraðili skulu hafa hafa eftirlit með því.
Sjá nánar midazolam.