Eiginleikar:
Hjartamagnýl inniheldur virka efnið asetýlsalicýlsýru.
Í stærri skömmtum (500-1000 mg) hefur efnið bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi verkun
Ábendingar:
Það er notað fyrirbyggjandi gegn blóðtappamyndun, það minnkar líkur á blóðþurrðareinkennum frá heila og á slagi og er líka notað fyrirbyggjandi hjá sjúklingum með hjartaöng og hjartadrep.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir lyfinu.
Aukaverkanir:
Lyfið getur minnkað áhrif þvagræsilyfja og blóðþrýstingslækkandi lyfja. Náttúrulyfið ginkgo getur aukið blæðingahættu.
Venjulegar skammtastærðir:
Ef staðfest STEMI er gefið 300 mg
75-150 mg daglega. Sýruþolnu töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Þær má hvorki mylja, brjóta né tyggja.
Ath:
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 16 ára án samráðs við lækni.
Nánar:
Flokkun eftir verkun: Lyf sem hindra samloðun blóðflagna önnur en heparín, ATC flokkur: B01AC06 Asetýlsalicýlsýra hindrar samloðun blóðflagna: hindrar cýklóoxýgenasa blóðflagnanna með acetýleringu, sem hindrar nýmyndun tromboxans A2, lífeðlisfræðilegs virkjandi efnis sem blóðflögurnar losa og sem myndi gegna hlutverki í fylgikvillum æðakölkunarskemmda (atheromatosic lesions). Hindrun nýmyndunar TXA2 er óafturkræf, þar sem blóðflögur, sem hafa engan kjarna, geta ekki (vegna skorts á getu til próteinnýmyndunar) myndað nýja cýklóoxýgenasa, sem voru acetýleraðir með asetýlsalicýlsýru.
Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [N] = EMT-Nurse (neyðarflutningamaður með hjúkrunarpróf); [P] = paramedic (bráðatæknir) eða EMT-N með sérhæfingu; [MD] = medical doctor (læknir); [CC] = critical care = (teymi bráða-/svæfinga-/gjörgæslulæknis og bráðatæknis/hjúkrunarfræðings). ⌛ = lyf skal gefið á X mín. ↻ = endurtaka má lyfjagjöf eftir X tíma. 📞 = Leitið ráðgjafar / heimildar hjá lækni.