Eiginleikar:
Andkólinergt lyf. Hraðar hjartslætti.
Ábendingar:
Alvarlegur hægataktur.
Frábendingar:
Hraðtaktur, einkum ef blóðþurrð í hjarta (kransæðastífla).
Fullorðnir:
▸ 0,5 mg IV að 0,04 mg/kg eða 3 mg alls
Börn:
▸ 0,02 mg/kg IV (mest 0,5 mg í senn)
Tafla atropin (0,5 mg/mL) bolus hjá börnum.
Þyngd (kg) 5 10 15 20 25
mg: 0,1 0,2 0,3 0,4 0,5
mL: 0,2 0,4 0,6 0,8 1,0
Varúð:
Hæg gjöf eða of lítill skammtur (<0,4mg hjá fullorðnum) getur valdið paradoxical hægingu á hjartslætti.
Aukaverkanir:
Hjartsláttartruflanir (VF/VT) einkum hjá sjúklingum með kransæðastíflu. Munnþurrkur, víð sjáöldur, óróleiki, rugl.
Ath:
Atrópín hefur enga virkni hjá einstaklingum eftir hjartaígræðslu, þar sem vagustaugin er ekki tengd ígrædda hjartanu. Atrópin hefur oft lélega/enga virkni á II. gráðu AV-blokk (týpu 2) eða III. gráðu AV-blokk.
Nánar:
Atrópín er parasympatiskur hamlari með andkólinerg áhrif. Lyfið hraðar á hjartslætti með því að hindra vagus áhrif á SA- og AV-hnúta hjartans. Minnkar framleiðslu munnvatns, berkjuslíms og magavessa og slakar á sléttum vöðvum í öndunarvegi. Notað sem fyrirbyggjandi við vagusörvun og hægatakti í sambandi við barkaþræðingu hjá smábörnum, ef sérstök áhætta er fyrir alvarlegum hægatakti svo sem sepsis, eða notkun succinylcholine. Atrópín er móteitur við kólinergum eitrunum (t.d. skordýraeitur líkt og malathion eða parathion, einnig taugaeitur líkt og sarin eða VX) en þá þarf oft mjög stóra skammta af atrópíni (>10x ofannefnda skammta).