Eiginleikar:
Hormón. Losar glycogen úr lifrinni sem umbreytist í glúkósa.
Frábendingar:
Ofnæmi (sjaldgæft).
Ábendingar:
Lágur blóðsykur (< 4) og einkenni sykurfalls (minnkuð eða breytt meðvitund) þegar ekki hefur tekist að skapa æðaaðgang (IV/IO). Eitrun með beta-hamlandi lyfjum (beta-blokkerum).
Fullorðnir og börn ≥25 kg:
▸ 1 mg IM / SC [I]
▸ 📞 Beta-blokkera eitrun: 1-5 mg IV bolus og svo dreypi 20 mg/klst [P]
Börn <6 ára / <25 kg:
▸ 0,5 mg IM / SC [I]
Ath:
Gefa skal kolvetni um leið og hægt er (þegar sjúklingur vaknar) eftir gjöf glycogens til þess að endurnýja glycogenbirgðir lifrarinnar.
Glúkagon verkar illa hjá sjúklingum með lágar glýkagónbirgðir í lifur svo sem við vannæringu, langa föstu, skerta nýrnastarfsemi, áfengissýki, og hjá nýburum.
Aukaverkanir:
Ógleði (algeng).
Nánar:
Ólíkt adrenalíni hefur glúkagon enga verkun á fosfórýlasa vöðva og getur því ekki hjálpað til við flutning kolvetna frá mun stærri glýkógenbirgðum sem finnast í stoðgrindarvöðvum.