Þegar farið er eftir stöðluðum fyrirmælum skal fylgja þeim meginreglum að:
1.Meta almennt ástand sjúklingsins, taka lífsmörk og fá upplýsingar um heilsufar, lyfjanotkun og ofnæmi áður en meðferð og/eða lyfjagjöf er hafin.
2. Hafa í huga að nýta einnig aðra möguleika til verkjastillingar, s.s. spelkun, hækkun og kælingu á líkamshlutum.
3. Sjúkraflutningamönnum með grunnmenntun er óheimilt að óska eftir heimild og/eða gefa lyf sem gefin eru upp fyrir neyðarflutningamenn eða bráðatækna.
3. Sjúkraflutningamönnum með neyðarflutningamenntun: Fylgja skal eftir samkomulagi við HSS um lyfjargjafir.
4. Sjúkraflutningamenn með bráðatæknimenntun hafa heimild til lyfjagjafa samkvæmt þessum stöðluðu fyrirmælum og vinnuferlum landlæknis með þeim takmörkunum sem hér koma fram. Leita skal eftir samþykki fjarskiptalæknis fyrir neðan greindum lyfjagjöfum og ef lyfjagjafir eða inngrip fara út fyrir þau mörk sem þessi fyrirmæli og vinnuferlarnir setja.
o Amiodarone (notað utan endurlífgunnarferla)
o Metoprolol
5. Við lyfjagjafir hjá öldruðum skal almennt velja lægri lyfjaskammta, sérstaklega þegar um er að ræða verkjastillandi og slævandi lyf.
6. Samhliða meðferð/flutningi skal hafa samband við slysa og bráðadeild og gefa staðlaða lýsingu á ástandi sjúklings, komutíma, áhrifum inngripa og meðferðar
7. Koma skal skýrt fram í fjarskiptum hvert menntunarstig starfsmanns er.
8. Skrá skal allar lyfjagjafir vandlega í sjúkraflutningaskýrslu og á lyfjagjafablað. Þá skal útprentun lífsmarka í flutningi fylgja með sjúkraflutningaskýrslu ásamt afriti af hjartalínuriti þar sem það á við.
9. Færa skal allar lyfjagjafir í lyfjamöppu hjá varðstjóra og láta vakthafandi Varðstjóra staðfesta