Diphenhydramine (P/N) (Benadryl)
Diphenhydramine (P/N) (Benadryl)
Eiginleikar:
Andhistamínlyf
Ábendingar:
Bráðaofnæmi. Þina (e. urticaria). Ferðaveiki við langa flutninga í sjúkrabíl.
Frábendingar:
Versnun á asthma eða einkenni frá neðri loftvegum. Lyfið á EKKI að gefa nýburum, fyrirburum, eða konum með barn á brjósti.
Fullorðnir:
▸ 25-50 mg IV/IM [P/N]
Börn:
▸ 1 mg/kg IV/IM [P/N] að hámarki 50mg iv eða im
Aukaverkanir:
Getur valdið slævingu, höfuðverk, svima.
Nánar:
Anaphylaxis eru bráðaofnæmisviðbrögð með áhrif á amk tvö líffærakerfi (húð, öndunarfæri, blóðrás, melting). Við alvarlegan anaphylaxis (öndunarerfiðleikar, lækkaður blóðþrýstingur) skal alltaf gefa adrenalín í vöðva sem fyrsta lyf (500 mcg ef >12 ára, 300 mcg ef 6-12 ára, 150 mcg ef <6 ára). Sjá nánar leiðbeiningar varðandi bráðaofnæmi á heimasíðu landlæknisembættisins.
Diphenhydramine er histamín hemill sem notaður er við bráðaofnæmi – anaphylaxis – EFTIR gjöf adrenalíns. Gagnast einnig til að draga úr kláða við einfalda þinu / urticariu (útbrot án “system” áhrifa). Histamín hemlar koma í veg fyrir frekari losun histamíns og draga þannig úr alvarlegu og víðtæku bólguviðbragði í líkamanum.