Eiginleikar:
Hýdrókortisón er barksteri með bæði sykur- og saltsteravirkni.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir lyfinu, ífarandi sveppasýkingar.
Ábendingar:
Grunur um kortisólskort, alvarlegt astmakast, versnun á COPD, sepsis sem svarar ekki meðferð vökva og pressora, ofnæmi.
Fullorðnir:
▸▸Kortisólskortur, astmi, sepsis, LLT/COPD: 100 mg IV/IM/IO
Börn:
▸Kortisólskortur: 0-1 árs: 25 mg / börn 1-5 ára: 50 mg / yfir 6 ára 100 mg IM/IV/IO
▸Astmi: 4 mg/kg (Hámark 100 mg) IM/IV/IO
▸Sepsis: 1-2 mg/kg (hámark 100 mg) IV/IM/IO
Varúð:
Hydrocortisone getur hækkað blóðsykur, valdið bjúg og hækkuðum blóðþrýstingi. Nota skal með varúð hjá sjúklingum með hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki, magasár, lifrar- eða nýrnavandamál, augnsjúkdóma og vöðvaslensfár (myasthenia gravis).
Aukaverkanir:
Hækkaður blóðsykur, vökva- og natríum retention, bjúgur, hækkaður blóðþrýstingur. Aukið næmi fyrir sýkingum. Svefntruflanir, skapbreytingar/manía, húðþynning, marblettir, húðroði, aukinn hárvöxtur. Vöðvarýrnun, beinþynning.
Nánar:
Hydrocortisone bælir bólgu og ónæmissvörun, minnkar æðaleka og styður við blóðþrýsting. Það hefur einnig áhrif á blóðsykur, vökva og saltjafnvægi og kemur í stað lífeðlislegs kortisóls sem er nauðsynlegt fyrir viðbrögð líkamans við streitu og álagi.
Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [P] = paramedic (bráðatæknir). ⌛ = lyf skal gefið á X mín. ↻ = endurtaka má lyfjagjöf eftir X tíma. 📞 = Leitið ráðgjafar / heimildar hjá lækni.