Eiginleikar:
Adenósín er notað við meðferð á ofansleglahraðtakti (SVT).
Ábending:
Ofansleglahraðtaktur (SVT).⌛Lyfið skal gefið hratt. (m.a. WPW)
Frábending:
Alvarlegt ofnæmi, sjúkur sínushnútur (sick sinus syndrome - SSS), þekkt 2° og 3° gáttasleglarof (AV-blokk).
Aukaverkanir :
Getur valdið tímabundnum óþægindum fyrir bjósti, hjartsláttaróþægindum, (flusing), Höfuðverk,ógleði , og berkjusamdeætti (ath við asthma).
Getur valdið tímabundinni hjartsláttaróreglu svo sem 2. -3. gráðu AV-blokk, asystolu, sínusbradycardiu, PAC eða PVC
Skammtar:
▸ Fyrsti skammtur: 6 mg IV
▸ Annar skammtur: 12 mg IV
▸ Þriðji skammtur: 18 mg IV
Börn:
▸Fyrsti skammtur: 0,1 mg/kg IV (Hámark 6 mg)
▸Annar skammtur: 0,2 mg/kg IV (Hámark 0,3 mg/kg eða 12 mg)
▸Þriðji skammtur: 0,2 mg/kg IV (Hámark 0,3 mg/kg eða 12 mg)
Ath:
Íhuga rafvendingu sem fyrstu meðferð hjá óstabílum sjúklingum með hraðtakt. Reyna vagus örvun fyrir gjöf Adenósíns.
Fyrir gjöf skal undirbúa sjúkling vel og láta vita um þau óþægindi sem fylgja oft gjöf Adenósíns t.d brjóstverkur, andyngsli, hræðslutilfinning, hjartsláttarónot (palpitations).
Lyfjaleið:
Adenósín skal gefið hratt í gegnum stóra æð í efri útlim, sem er eins nálægt hjarta og mögulegt er (t.d. í olnbogabót).
Nauðsynlegt að skola strax á eftir með 20 ml af 0,9% NaCl eða 5-10 ml hjá börnum (gott að nota 3-WAY krana til að geta skolað hratt).
Einnig er hægt að draga Adenosine upp í 20 ml sprautu með NaCl 0,9% og gefa hratt.
Nánar:
Adenósín er núkleósíð sem dregur úr leiðni um AV-hnútinn. Þetta truflar endurinnkomubrautir í hjartanu og getur endurheimt eðlilegan sínus takt hjá sjúklingum með SVT.
Lykill:
[FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [P] = paramedic (bráðatæknir). ⌛ = lyf skal gefið á X mín. ↻ = endurtaka má lyfjagjöf eftir X tíma. 📞 = Leitið ráðgjafar / heimildar hjá lækni.
Heimildir:
Brugada, J., Katritsis, D. G., Arbelo, E., Arribas, F., Bax, J. J., Blomström-Lundqvist, C., .. ESC Scientific Document Group. (2020). 2019 ESC guidelines for the management of patients with supraventricular tachycardia. European Heart Journal, 41(5), 655–720. https://doi.org/10.1093/eurheartj/ehz467
Al‑Khatib, S. M. (2024). Intravenous adenosine for acute treatment of supraventricular tachycardia. In J. A. Perry & D. M. Brugada (Eds.), UpToDate. Wolters Kluwer. Retrieved July 8, 2025, from https://www.uptodate.com
Medusa NHS Injectable Medicines Guide
Medicines Complete Injectable Drugs Guide
Dagsetning: 24.09.2025
Höfundur: Bergur Ingi Geirsson, BSc bráðatæknir
Ábendingar: Helga Rut Steinsdóttir lyfjafræðingur, Vicente SBI bráðalæknir, Þóra Elísabet Kristjánsdóttir heimilislæknir
Samþykkt: DrVSBI
Rafræn útgáfa. Ekki er hægt að treysta því að útprentað eða vistað eintak sé rétt útgáfa. Þessar leiðbeiningar eru eingöngu til leiðsagnar; þeir sem starfa samkvæmt þeim bera ábyrgð á réttum vinnubrögðum og gagnrýnni notkun þessara leiðbeininga.