Eiginleikar:
Magnesíum hefur áhrif á taugaboð, vöðvasamdrátt og hjartslátt.
Ábendingar:
Hypomagnesemia. Meðgöngukrampi (eclampsia).
Alvarleg meðgöngueitrun (preeclampsia). Torsades des pointes. Gáttatif (atrial fibrillation).
Alvarlegt astmakast sem svarar ekki meðferð.
Má íhuga sem viðbótarmeðferð við alvarlegri versnun á COPD.
Frábendingar:
Engar algjörar frábendingar í bráðameðferð.
Fullorðnir:
▸Astmi eða COPD: 2 g (8 mmól) IV/IO gefið á 20 mín. [P]
▸Torsades des pointes með púls: 2 g (8 mmól) IV/IO gefið á 15 mín. ↻ PN [P]
▸Púlslaus Torsades des pointes: 2 g (8 mmól) IV/IO í bólus á 2 mín. ↻ 3x að 6 g [P]
▸Gáttatif: 4 g (16 mmól) IV/IO gefið á a.m.k. 1 klst. (síðan 1 g/klst.) [P]
▸Eclampsia: 4 g (16 mmól) IV/IO gefið á 5 mín. Síðan 1-2 g/klst. IV/IO ef langur flutningur. Gefa 2 g (8 mmól) til viðbótar ef krampar halda áfram [P]
▸Preeclampsia📞: 4 g IV/IO gefið yfir 30 mín (síðan 1-2 g/klst. IV/IO ef langur flutningur) [P]
Börn:
▸Astmi: 50 mg/kg (0,20 mmól/kg.) IV/IO (hámark 2 g) gefið á 20 mín. [P]
▸Torsades des pointes með púls: 50 mg/kg IV/IO (0,20 mmól/kg) (hámark 2 g) gefið á 20 mín. [P]
▸Púlslaus Torsades des pointes: 50 mg/kg IV/IO (0,20 mmól/kg) (hámark 2 g) gefið á á a.m.k. 2 mín. [P]
ATH:
Lyfið skal þynnt fyrir fullorðna (t.d. í 100 ml) og a.m.k. 200 mg/ml fyrir börn.
Gefið í dreypi nema í hjartastoppi.
Hafa sjúkling í monitor við gjöf.
Skammtur þynntur í 100 ml af 0,9% NaCl eða 5% glúkósa (nema í hjartastoppi).
Hafa skal sjúkling í monitor við gjöf magnesíum.