Eiginleikar:
Sykurlausn 10g / 100mL
Ábendingar:
Lágur blóðsykur (< 4mmol/L) og einkenni sykurfalls (minnkuð eða breytt meðvitund).
Frábendingar:
Of hár blóðsykur.
Fullorðnir:
▸ 10g glúkósa = 100 ml bolus IV/IO. [I]
Börn:
▸ 2,5 ml/kg IV/IO [I]
Ath: Endurmat og mæling eftir gjöf (ca. 5 mín).
Ef lítil eða engin klínisk áhrif koma fram við fyrstu gjöf er heimilt að endurtaka 100ml bolus að 300ml (30g) (eða 2,5 mg/mL x2).
Íhuga aðrar orsakir.
Virkni:
innan við 1 min
Aukaverkanir:
Lækkað natríumsalt í blóði.
Nánar:
Til eru aðrir styrkleikar af sykurlausnum sem einnig geta skilað sama árangri.
Þannig eru 20 mL af 50% glúkósa = 10 g en sú lausn er mjög sterk og meira ertandi í æðar og því ekki æskilegt að nota nema aðrir kostir séu ekki til staðar og ætti þá að þynna við gjöf amk. til helminga t.d. með sæfðu vatni.